Meda hjálpar þér að átta þig á næstu skrefum, taka réttar myndir, skrá það sem skiptir máli og senda upplýsingarnar áfram þegar við á.
Ekkert app, engin flókin skráning.
Ef einhver er slasaður skaltu hringja í 112. Meda kemur ekki í stað neyðarlínu.
Eftir árekstur, bilun eða annað atvik vakna margar spurningar í einu. Hvað á að mynda? Hvern á að láta vita? Hvaða upplýsingar skipta máli?
Meda hjálpar þér að skrá atvikið á staðnum, á meðan upplýsingarnar eru ferskar.
Leiðin opnast þegar þú þarft á henni að halda. Ekkert app að sækja, ekkert að muna fyrir fram.
Skannaðu kóðann í bílnum með myndavélinni. Meda opnast strax.
Bílaleigan eða þjónustuaðilinn sendir þér hlekk í SMS þegar á þarf að halda.
Meda keyrir í vafranum í símanum. Ekkert að setja upp, ekkert að skrá sig inn.
Þú opnar Meda með tengli, QR-kóða eða beinni vefslóð. Ekkert app, engin flókin skráning.
Meda spyr fyrst hvort einhver sé slasaður. Ef svo er, leiðir Meda þig að því að hafa samband við 112.
Meda hjálpar þér að taka myndir, staðsetja atvikið og lýsa því sem gerðist í stuttu máli. Meda metur ekki sök.
Þegar allt er tilbúið sérðu hvað verður sent og hvert. Þú staðfestir áður en upplýsingarnar fara áfram.
Málið berst bílaleigunni eða tryggingafélaginu, sem heldur áfram með það.
Þú getur fylgst með stöðunni og þarft ekki að gera meira í bili.
Þú svarar spurningunum í símanum.
Þú sérð samantekt á öllu sem þú skráðir áður en nokkuð er sent.
Þú staðfestir skýrsluna. Ekkert er sent fyrr en þá.
Skýrslan fer til fyrirtækisins sem á bílinn.
Starfsfólk þar tekur við málinu og sendir það áfram til tryggingafélags ef málið á heima þar.
Meda getur hjálpað bílaleigum, tryggingafélögum og þjónustuaðilum að fá skýrari upplýsingar fyrr í ferlinu.
Skoða samstarf