Meda
Persónuverndarstefna
Meda Islandica ehf. („Meda“, „við“ eða „okkur“) leggur áherslu á að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar á öruggan, gagnsæjan og ábyrgan hátt.
Síðast uppfært: 25. ágúst 2026
Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvaða persónuupplýsingum við söfnum þegar þú notar Meda, hvers vegna við vinnum með þær, hverjir geta fengið aðgang að þeim og hvaða réttindi þú hefur.
1. Ábyrgðaraðili
Meda Islandica ehf. er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga þegar Meda ákveður tilgang og aðferðir vinnslunnar.
Í öðrum tilvikum kann Meda að vinna persónuupplýsingar fyrir hönd samstarfsaðila. Þá getur viðkomandi samstarfsaðili verið ábyrgðaraðili vinnslunnar og Meda vinnsluaðili hans.
Meda Islandica ehf.
Netfang vegna persónuverndarmála: personuvernd@meda.is
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
Upplýsingarnar sem við söfnum ráðast af því hvernig þú notar þjónustuna og hvers konar atvik þú ert að skrá.
Þær geta meðal annars verið:
- nafn og samskiptaupplýsingar;
- símanúmer;
- upplýsingar um ökutæki, svo sem skráningarnúmer;
- staðsetning atviks;
- dagsetning og tímasetning;
- upplýsingar um tegund og aðstæður atviks;
- ljósmyndir og myndskeið sem þú sendir inn, þar á meðal persónuupplýsingar sem kunna að sjást á myndum eða myndskeiðum;
- upplýsingar sem þú skráir eða lýsir sjálf/ur í tengslum við atvikið;
- upplýsingar um aðra einstaklinga, ökutæki eða aðila sem tengjast atvikinu;
- tæknilegar upplýsingar sem verða til við notkun þjónustunnar og eru nauðsynlegar vegna virkni, öryggis og reksturs hennar.
Við biðjum þig aðeins um upplýsingar sem tengjast þjónustunni og því atviki sem verið er að skrá.
3. Staðsetning, myndavél og myndir
Meda getur óskað eftir aðgangi að staðsetningu tækisins svo hægt sé að skrá hvar atvik átti sér stað.
Þegar staðsetning er skráð eru hnitin send til utanaðkomandi kortaþjónustu, annars vegar til að birta kort af staðnum og hins vegar til að fletta upp heimilisfangi. Vafrinn þinn kallar beint á þessar þjónustur og þær eru opnar þjónustur fremur en þjónustuaðilar sem vinna upplýsingar fyrir hönd Meda. Hnitin eru send í þeim tilgangi einum.
Að því marki sem slík þjónusta vinnur persónuupplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins byggist sú vinnsla á fullnægjandi heimild samkvæmt gildandi persónuverndarlögum, svo sem ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fullnægjandi vernd.
Við getum einnig óskað eftir aðgangi að myndavél eða myndasafni svo þú getir tekið eða sent inn myndir og myndskeið sem tengjast atvikinu. Myndir og myndskeið geta innihaldið persónuupplýsingar sem sjást á þeim, svo sem andlit, skráningarnúmer, heimilisföng, skjöl eða aðrar upplýsingar um einstaklinga og eignir.
Vafrinn eða stýrikerfi tækisins biður þig um viðeigandi heimildir. Ef þú veitir ekki heimild reynum við, þar sem það er mögulegt, að bjóða aðra leið til að skrá upplýsingarnar.
4. Hvers vegna vinnum við með upplýsingarnar?
Við vinnum persónuupplýsingar meðal annars til að:
- leiðbeina þér í gegnum næstu skref eftir atvik;
- skrá og varðveita upplýsingar um atvikið;
- útbúa skipulagt yfirlit eða skýrslu;
- koma upplýsingum til viðeigandi samstarfsaðila eða þjónustuaðila þegar það er nauðsynlegt vegna atviksins;
- gera þeim aðilum sem koma að úrlausn málsins kleift að taka við og vinna áfram með upplýsingarnar;
- bjóða öðrum ökumanni að skrá sína hlið þegar árekstur er skráður;
- veita þér upplýsingar um næstu skref;
- tryggja öryggi, rekstur og virkni þjónustunnar;
- bregðast við fyrirspurnum og leysa tæknileg vandamál;
- uppfylla lagaskyldur sem kunna að hvíla á Meda.
5. Lagagrundvöllur vinnslu
Lagagrundvöllur vinnslunnar fer eftir eðli upplýsinganna, tilgangi vinnslunnar og aðstæðum hverju sinni.
Vinnsla getur meðal annars byggst á:
- því að vinnslan sé nauðsynleg til að veita þjónustu sem óskað hefur verið eftir eða gera ráðstafanir að beiðni notanda;
- lögmætum hagsmunum Meda eða viðeigandi samstarfsaðila, að teknu tilliti til réttinda og hagsmuna hins skráða;
- lögmætum hagsmunum af því að báðir aðilar geti skráð sína hlið þegar árekstur er skráður;
- samþykki, þegar vinnslan byggist á eða krefst samþykkis;
- lagaskyldu sem hvílir á Meda.
Ef unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar gilda jafnframt sérstakar reglur um heimild til slíkrar vinnslu.
6. Upplýsingar um slys og heilsu
Meda getur spurt hvort einhver hafi slasast þegar atvik er skráð. Tilgangurinn er fyrst og fremst að beina notanda að neyðarþjónustu þegar þörf er á.
Meda er ekki neyðarþjónusta og kemur ekki í stað 112, lögreglu eða heilbrigðisþjónustu.
Ef upplýsingar um meiðsl eða heilsu eru skráðar í þjónustunni geta þær talist viðkvæmar persónuupplýsingar og eru þá meðhöndlaðar í samræmi við þær auknu kröfur sem gilda um slíkar upplýsingar.
Ef um neyð er að ræða skaltu hafa samband við 112.
7. Hverjir geta fengið upplýsingarnar?
Upplýsingum er aðeins miðlað þegar það er nauðsynlegt vegna þjónustunnar, atviksins eða áframhaldandi úrlausnar málsins.
Viðtakendur geta verið samstarfsaðilar, þjónustuaðilar og opinberir aðilar sem hafa lögmætt hlutverk í tengslum við viðkomandi atvik. Það geta til dæmis verið:
- tryggingafélög;
- bílaleigur eða aðrir eigendur eða umráðamenn ökutækja;
- lögreglan, þegar miðlun er heimil eða skylt samkvæmt lögum, eða þegar upplýsingarnar geta verið nauðsynlegar vegna rannsóknar eða meðferðar máls;
- vegaaðstoð og aðrir aðstoðaraðilar;
- verkstæði og viðgerðaraðilar;
- mats- og skoðunaraðilar;
- aðrir aðilar sem koma að úrlausn eða vinnslu viðkomandi máls.
Upplýsingar sem koma fram á myndum, myndskeiðum eða í lýsingu notanda geta verið miðlaðar ásamt öðrum upplýsingum um atvikið þegar það er nauðsynlegt og lögmætt vegna úrlausnar þess. Það getur til dæmis átt við um andlit, skráningarnúmer, skjöl, staðsetningarupplýsingar eða aðrar upplýsingar sem sjást á innsendu efni.
Hvaða aðilar fá upplýsingar fer eftir eðli atviksins, þeirri þjónustu sem óskað er eftir og eftir atvikum samningssambandi sem tengist notandanum eða ökutækinu.
Meda miðlar ekki persónuupplýsingum til aðila sem hafa ekki lögmætt hlutverk í viðkomandi þjónustu eða máli.
Meda selur ekki persónuupplýsingar notenda.
8. Tæknilegir vinnsluaðilar
Meda notar þjónustuaðila til að reka og veita þjónustuna. Það geta meðal annars verið aðilar sem veita:
- hýsingu og gagnageymslu;
- sendingu SMS-skilaboða og annarra samskipta;
- tæknilega innviði og rekstrarþjónustu;
- kort- og landfræðiþjónustu;
- vefmælingar og tölfræði um notkun vefsins;
- öryggis- og vöktunarþjónustu.
Þegar slíkir aðilar vinna persónuupplýsingar fyrir hönd Meda skulu þeir aðeins vinna upplýsingarnar samkvæmt fyrirmælum Meda og á grundvelli viðeigandi samninga og öryggiskrafna.
Kort- og landfræðiþjónusta getur þó verið opin þjónusta sem vafrinn þinn kallar beint á, fremur en þjónustuaðili sem vinnur upplýsingar fyrir hönd Meda. Nánar er fjallað um það í kaflanum um staðsetningu, myndavél og myndir.
9. Staðsetning vinnslu og flutningur utan EES
Gögn um atvik — skýrslur, myndir, myndskeið og aðrar upplýsingar sem þú skráir — eru vistuð innan Evrópska efnahagssvæðisins, og sending smáskilaboða fer einnig fram innan svæðisins.
Aðrir tæknilegir innviðir, svo sem hýsing og afhending vefsins, auðkenningarþjónusta og kort- og landfræðiþjónusta, kunna að vera reknir af þjónustuaðilum sem vinna persónuupplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Að því marki sem slík vinnsla fer fram byggist hún á fullnægjandi heimild og viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt gildandi persónuverndarlögum.
Það getur meðal annars byggst á ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fullnægjandi vernd eða stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnarinnar.
10. Hversu lengi geymum við upplýsingar?
Við geymum persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar, eðli upplýsinganna, lagaskyldur og réttmæta þörf fyrir varðveislu þeirra.
Varðveislutími getur verið mismunandi eftir tegund upplýsinga, eðli atviks og því hvort upplýsingum hefur verið miðlað til annars ábyrgðaraðila eða samstarfsaðila sem tekur við áframhaldandi vinnslu málsins.
Þegar ekki er lengur þörf á upplýsingunum er þeim eytt eða þær gerðar ópersónugreinanlegar, nema lög eða önnur lögmæt ástæða krefjist áframhaldandi varðveislu.
11. Öryggi persónuupplýsinga
Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að verja persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingu, birtingu, tapi eða eyðingu.
Aðgangur að persónuupplýsingum er takmarkaður við þá sem þurfa á honum að halda vegna starfa sinna eða vegna þjónustu við viðkomandi mál.
Engin rafræn vinnsla eða geymsla upplýsinga er þó algjörlega áhættulaus og því er ekki hægt að tryggja fullkomið öryggi gagna.
12. Upplýsingar um aðra einstaklinga
Við skráningu atviks getur þú þurft að veita upplýsingar um aðra einstaklinga, til dæmis annan ökumann eða annan aðila sem tengist atvikinu.
Þegar árekstur er skráður getur Meda sent öðrum ökumanni smáskilaboð með tengli svo hann geti skráð sína eigin hlið. Símanúmerið er notað til að senda tengilinn og verður hluti af upplýsingum um atvikið. Um varðveislu þess og aðgang að því gilda sömu reglur og um aðrar upplýsingar um atvikið. Tengillinn sjálfur gildir í takmarkaðan tíma. Ef tengillinn er ekki notaður er afriti númersins sem fylgir honum eytt eftir að hann rennur út.
Þegar tengillinn er opnaður birtast grunnupplýsingar um atvikið, svo sem tegund þess og staðsetningu, svo viðtakandi viti hvaða atvik um ræðir.
Báðar skráningar fara í sömu skýrslu og eru hafðar aðgreindar þar, þannig að frásagnir blandist ekki saman. Sá sem skráði atvikið og þeir viðtakendur sem taldir eru upp í kaflanum um hverjir geta fengið upplýsingarnar hafa aðgang að skýrslunni í heild, þar með talið því sem hinn aðilinn skráði.
Fáir þú slík skilaboð frá Meda án þess að hafa notað þjónustuna sjálf/ur komu upplýsingarnar um þig frá þeim sem skráði atvikið. Þú átt sömu réttindi og aðrir skráðir einstaklingar, sbr. kaflann um réttindi þín.
Við biðjum þig um að veita aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna atviksins og forðast að senda inn myndir eða aðrar upplýsingar sem tengjast ekki atvikinu.
Upplýsingar um aðra einstaklinga eru meðhöndlaðar samkvæmt sömu persónuverndar- og öryggisreglum og aðrar persónuupplýsingar í þjónustunni.
13. Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum getur þú, eftir því sem við á, átt rétt á að:
- fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga um þig;
- fá aðgang að upplýsingunum;
- fá rangar eða ófullnægjandi upplýsingar leiðréttar;
- óska eftir eyðingu upplýsinga;
- óska eftir takmörkun vinnslu;
- mótmæla tiltekinni vinnslu;
- fá upplýsingar afhentar á færanlegu formi þegar skilyrði þess eru uppfyllt;
- afturkalla samþykki þegar vinnsla byggist á samþykki.
Réttindin eru ekki algild og geta takmarkast af lögum, eðli vinnslunnar eða réttindum annarra.
Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem þegar hefur farið fram áður en samþykkið var afturkallað.
Til að nýta réttindi þín getur þú haft samband við okkur á personuvernd@meda.is.
Við kunnum að þurfa að staðfesta auðkenni þitt áður en beiðni er afgreidd.
14. Kvörtun til Persónuverndar
Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga þinna sé ekki í samræmi við persónuverndarlög getur þú sent kvörtun til Persónuverndar.
Þú getur einnig haft samband við okkur á personuvernd@meda.is og við munum leitast við að svara erindinu og leysa úr því eins fljótt og unnt er.
Persónuvernd
Netfang: postur@personuvernd.is
Vefur: personuvernd.is
15. Vefkökur og sambærileg tækni
Meda kann að nota nauðsynlegar vefkökur eða sambærilega tækni til að tryggja virkni, öryggi og rekstur vefsins.
Á meðan þú fyllir út skráningu geymir þjónustan upplýsingar um framvindu þína tímabundið í vafranum þínum, þar á meðal þær upplýsingar sem þú hefur þegar skráð, svo þær tapist ekki þótt tækið lokist eða samband rofni. Þær eru einungis í tæki þínu, eru notaðar í tæknilegum tilgangi og hverfa þegar skráningu er lokið eða vafragögn eru hreinsuð.
Til að sjá heildartölur um notkun vefsins notum við vefmælingaþjónustu sem setur engar vefkökur, safnar ekki persónugreinanlegum upplýsingum og fylgist ekki með þér milli vefsíðna. Þess vegna birtist enginn samþykkisborði fyrir vefkökur.
Ef notuð er tækni sem samkvæmt lögum krefst samþykkis, til dæmis vegna tiltekinna mælinga eða markaðssetningar, verður óskað eftir samþykki áður en hún er virkjuð.
Nánari upplýsingar um slíka notkun, ef við á, eru veittar í tengslum við viðkomandi samþykkisval.
16. Breytingar á persónuverndarstefnunni
Við getum uppfært þessa persónuverndarstefnu þegar þjónustan, vinnsla persónuupplýsinga eða lagakröfur breytast.
Nýjasta útgáfa stefnunnar er birt á vef Meda ásamt dagsetningu síðustu uppfærslu.
17. Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar um meðferð persónuupplýsinga hjá Meda eða vilt nýta réttindi þín getur þú haft samband:
Meda Islandica ehf.
personuvernd@meda.is