Þegar viðskiptavinur eða starfsmaður lendir í atviki á vegum úti skráir hann atvikið í símanum. Starfsfólkið ykkar fær myndir, staðsetningu og lýsingu strax, í stað þess að púsla upplýsingunum saman úr símtölum og tölvupóstum.
Þú nærð í okkur á meda@meda.is
Ökumaður hringir frá vegkantinum, oft stressaður. Myndirnar koma daginn eftir, ef þær koma. Bílnúmerið er skráð, en staðsetningin er bara „einhvers staðar á Suðurlandsvegi“. Starfsfólkið hringir til baka til að spyrja það sem gleymdist.
Með Meda skráir ökumaðurinn þetta strax á staðnum: réttar myndir, hnit úr símanum og stutta lýsingu, áður en hann leggur af stað aftur.
Alltaf:
Ef ökumaður skráir:
Viðskiptavinur skemmir bíl úti á landi og skráir tjónið í Meda á staðnum. Þegar bílnum er skilað eru myndirnar og lýsingin þegar komnar til ykkar, í stað þess að þið þurfið að spyrja og giska eftir á.
Tjónateymið opnar mál þar sem myndir, hnit og lýsing liggja fyrir frá vettvangi. Færri símtöl þarf til að afla þess sem vantar. Bótaákvörðun og uppgjör geta byrjað strax.
Við skoðum með fyrirtækjum í vegaaðstoð hvort sama skýrsla geti fylgt beiðni um aðstoð: nákvæm staðsetning, mynd af aðstæðum og hvað bilaði. Þetta er á byrjunarstigi og við mótum það með þeim sem vilja prófa.
Sendibílar, verktakar, leigubílar, sveitarfélög. Stór hluti tjóna á eigin flota fer aldrei til tryggingafélags og er hvergi skráður. Með Meda skráir ökumaðurinn atvikið á staðnum og þið fáið yfirsýn yfir tjón á flotanum, líka þau sem þið gerið upp sjálf.
Meda er byggð af fólki sem hefur unnið lengi við tjónaferli og stafræna þjónustu. Við höfum séð hvað gerist þegar fyrsta skráning er ófullnægjandi.
Við hönnuðum Meda með ökumann í huga. Hann stendur við bílinn, oft stressaður og með takmarkaðan tíma og spyr sig: hvað geri ég næst? Skýrslan á að vera tilbúin til vinnslu þegar hún berst ykkur.
Þið ákveðið hvernig ökumaðurinn opnar Meda og með hvaða hætti skýrslan berst ykkur. Hægt er að byrja einfalt og bæta við dýpri tengingu þegar þið viljið.
Hvernig ökumaðurinn opnar Meda:
Hvernig skýrslan berst ykkur:
Þið getið prófað Meda án þess að breyta ykkar kerfum. Beina tengingu setjum við svo upp þegar tilraun hefur sýnt að þetta virkar fyrir ykkur.
Best er að byrja smátt og skýrt: hluti flotans, ein tegund tjóns eða einn þjónustuferill.
Á nokkrum vikum sjáum við svart á hvítu:
Þú nærð í okkur á meda@meda.is